Fréttir
Skriða
Jarðvegsskriða við Hamarssel í Hamarsfirði 28. september 2017

Hætta á jarðvegsskriðum

29.9.2017

Undanfarna daga hefur rignt mikið á Suðausturlandi og Austurlandi og flóð hafa valdið vandræðum víða. Skriður féllu á nokkrum stöðum um síðustu helgi og í gær, fimmtudag, er vitað um skriður í Hamarsfirði og í Skriðdal.

Skriðan í Hamarsfirði var stór jarðvegsskriða sem átti upptök ofarlega í fjallinu þar sem jarðvegur var orðinn vatnsmettaður og óstöðugur. Hún náði niður á tún og olli fjárskaða.

Spáð er áframhaldandi rigningu á svæðinu fram á laugardagskvöld. Í landslagi þar sem eru fjöll og firðir getur verið mikill munur á úrkomu innan lítils svæðis og erfitt er að spá fyrir um nákvæmlega hvar hún verður mest. Jafnvel þótt úrkoma verði ekki eins mikil og síðustu daga, þá er hætt við að fleiri jarðvegsskriður falli vegna þess hversu blautur jarðvegurinn er fyrir. Þetta getur einnig gerst utan hefðbundinna skriðusvæða.


Samráðsfundur í eftirlitssal 29. september. Sérfræðingar í veðri og vatnsflóðum og fleiri fara yfir stöðuna..





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica