Fréttir

Safetravel

Slysalaust ferðalag

15.6.2013

Eins og þekkt er orðið hefur Slysavarnafélagið Landsbjörg beitt sér fyrir forvörnum í ferðamennsku á þann hátt að auka samvinnu þeirra er koma að öryggi ferðafólks.

Vefsíðan Safetravel er rekin af Slysavarnafélaginu Landsbjörg og er hluti af stærra verkefni sem einfaldlega kallast Safetravel. Þar taka höndum saman opinberar stofnanir, einstaklingar og fyrirtæki sem hafa það að markmiði að bæta forvarnir og minnka slys í ferðamennsku og ferðaþjónustu hér á landi. Veðurstofan hefur komið að verkefninu frá upphafi.

Verkefnið nýtur stuðnings fjölda fyrirtækja en er stýrt frá skrifstofu Slysavarnafélagins Landsbjargar enda er innan raða félagsins fjöldi einstaklinga með yfirgripsmikla þekkingu á landinu og ferðalögum við ýmsar aðstæður.

112 Iceland appið

Nýjung fyrir öryggi ferðamanna er snjallsímaforritið 112 Iceland sem er einfalt í notkun; annarsvegar er hægt að kalla á aðstoð ef um slys eða óhapp er að ræða og hinsvegar er hægt skilja eftir slóð sem nýtist ef óttast er um afdrif viðkomandi og leit þarf að fara fram.

Forritið má nota bæði hérlendis og erlendis og frekari upplýsingar má fá á vefsíðu Safetravel. Ekki er þörf á gagnasambandi til að nota forritið, hefðbundið GSM samband dugar.

Forritið leysir ekki af hólmi önnur öryggistæki eins og neyðarsenda og talstöðvar, það er fyrst og fremst viðbót sem nýtist þeim sem nota snjallsíma. Að skilja eftir ferðaáætlun er enn í fullu gildi.

Ferðaáætlun

Áður en lagt er í ferð á ávallt að gera ferðaáætlun og skilja eftir hjá tengilið eða ættingja sem skal bregðast við ef viðkomandi skilar sér ekki á réttum tíma. Slíkt eykur öryggi allra ferðalanga og getur lágmarkað tjón ef slys verður. Boðið er upp á vöktun ferðarinnar ef fólk vill. Ferðaáætlun ætti að innihalda eftirfarandi upplýsingar:

  • Dagsetningu ferðar, brottfarartíma og áætlaðan komutíma
  • Nöfn ferðalanga og símanúmer eða önnur fjarskiptatæki
  • Gististaðir (GPS staðsetningar) og aðra stærri viðkomustaði
  • Helsta búnað ferðalanga
  • Varaáætlun, hvað ferðalangar ætla að gera ef forsendur breytast


Myndaborðinn er af vefsíðu Safetravel. Lesa má eldri fréttir um Safetravel frá 2012 og 2011 og 2010.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica