Fréttir
Næturþokan víkur að morgni við Elliðavatn.

Safetravel

Öryggi í ferðamennsku

27.6.2014

Eins og þekkt er orðið hefur Slysavarnafélagið Landsbjörg beitt sér fyrir forvörnum í ferðamennsku á þann hátt að auka samvinnu þeirra er koma að öryggi ferðafólks.

Vefsíðan Safetravel er rekin af Slysavarnafélaginu Landsbjörg og er hluti af stærra verkefni sem einfaldlega kallast Safetravel. Þar taka höndum saman opinberar stofnanir, einstaklingar og fyrirtæki sem hafa það að markmiði að bæta forvarnir og minnka slys í ferðamennsku og ferðaþjónustu hér á landi.

112 Iceland appið

Snjallsímaforritið 112 Iceland er einfalt í notkun. Annarsvegar er hægt að kalla á aðstoð og hinsvegar er hægt skilja eftir GPS slóð sem nýtist ef leit þarf að fara fram.

  • Skrá upplýsingar – setja inn nafn sitt og símanúmer nánasta aðstandanda.
  • Skilja eftir slóð – GPS staðsetningin fer á 112 en er eingöngu notuð í neyð.
  • Neyð – ýtt á hnapp til að kalla eftir aðstoð, símtal opnast við 112.

Forritið má nota bæði hérlendis og erlendis. Frekari upplýsingar má fá á vefsíðu Safetravel og þar er hægt að sækja forritið bæði fyrir Android síma, Windows síma og Iphone.

Forritið leysir ekki af hólmi önnur öryggistæki eins og neyðarsenda og talstöðvar, það er fyrst og fremst viðbót sem nýtist þeim sem nota snjallsíma. Að skilja eftir ferðaáætlun er enn í fullu gildi.

Ferðaáætlun

Áður en lagt er í ferð skal ávallt að gera ferðaáætlun og skilja eftir hjá tengilið eða ættingja sem getur brugðist við ef viðkomandi skilar sér ekki á réttum tíma. Slíkt eykur öryggi allra ferðalanga og getur lágmarkað tjón ef slys verður.

Ferðaáætlun má líka einfaldlega skilja eftir hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg í gegnum Safetravel og boðið er upp á vöktun ferðarinnar ef fólk vill. Ferðaáætlunin ætti að innihalda eftirfarandi upplýsingar:

  • Dagsetningu ferðar, brottfarartíma og áætlaðan komutíma
  • Nöfn ferðalanga og símanúmer eða önnur fjarskiptatæki
  • Gististaði (GPS staðsetningar) og aðra stærri viðkomustaði
  • Helsta búnað sem hópurinn eða einstaklingarnir hafa meðferðis
  • Varaáætlun, hvað ferðalangar ætla að gera ef forsendur breytast


Myndaborðinn er af vefsíðu Safetravel. Lesa má eldri fréttir um Safetravel frá 2013, 2012, 2011, 2010. Verkefnið nýtur stuðnings fjölda fyrirtækja en er stýrt frá skrifstofu Slysavarnafélagins Landsbjargar, enda er innan raða félagsins fjöldi einstaklinga með yfirgripsmikla þekkingu á landinu og ferðalögum við ýmsar aðstæður. Veðurstofan hefur komið að verkefninu frá upphafi.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica