Fréttir
Staðan 30. september 2015 kl. 14:15.

Íshellan sígur - í beinni útsendingu

Hæðarbreyting í Eystri Skaftárkatli á línuriti

30.9.2015

Heildarsig íshellunnar yfir Eystri Skaftárkatli er orðið yfir tíu metrar þegar þetta er skrifað, kl. 14:15 (30. sept). Nú má skoða hæðarbreytingarnar á vefnum um leið og þær gerast, mældar með GPS tæki uppi á jöklinum.

Varðandi jökulhlaup vísast til fyrri fréttar. Athugasemdir sérfræðings (rautt) á forsíðu Vatnafars veita nýjustu upplýsingar.

Lóðrétt færsla (í metrum) er fengin með rauntímaúrvinnslu úr GPS tæki sem er í miðjum katlinum. Hæðargildið efst til vinstri, ofan við línuritið, er mesta hæð yfir sjávarmáli. Núllgildið á línuritinu vísar til þessarar hæðar. Hæðargildið efst til hægri lýsir núverandi stöðu tækisins (m y.s.). Línuritið sýnir hæðarbreytingu síðan kl 12:00, laugardaginn 26. september, og uppfærist á fimm mínútna fresti. Gráa línan sýnir mismunagildi en rauða línan sýnir 30 mínútna miðgildi. Gráa lóðrétta strikið markar síðustu klst.

Heildarsigið er tölugildið fyrir ofan ljósmyndina.

Kort þetta uppfærist á 5 mínútna fresti. Stækkanlegt.

Mælingarnar eru fjármagnaðar af evrópska rannsóknarverkefninu FutureVolc, Orkurannsóknarsjóði Landsvirkjunar og Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar. Veðurstofa Íslands hefur séð um rekstur tækisins með aðstoð frá Landhelgisgæslunni, Háskóla Íslands og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica