Berg- og sprungulekt

Berglekt, sprungulekt

Vatnajarðfræðilegir eiginleikar jarðlaganna ráða bæði magni og gæðum grunnvatns. Ungt berg - frá seinni hluta kvarters og nútíma (yngra en 0,7 milljónir ára) - er yfirleitt lekt. Má þar nefna nútíma hraun, grágrýti, bólstraberg og óummyndað móberg. Jarðmyndanir frá þessum tíma eru víða sundursaxaðar af opnum sprunguskörðum, sem auka í senn á lektina og skapa um leið misleitni í henni, er beinir grunnvatnsstraumum í ákveðnar áttir. Straumar þessir spretta víða fram í vatnsmiklum lindum, einkum við jaðar hins síðkvartera svæðis, undan hraunbreiðum og fram úr sprunguskörðum. Í eldri jarðmyndunum - frá tertíer og árkvarter (eldri en 0,7 milljónir ára) er berg yfirleitt orðið vatnsþétt af ummyndunum og fergingu í jarðlagastaflanum. Þó finnst lekt berg á þessum svæðum, til dæmis utanvert á Vestfjörðum.

Kort sem sýnir berglekt á Skaftársvæðinu (OS-2002 / 035)
Kort sem sýnir sprungulekt á Skaftársvæðinu (OS-2002 / 039)
Kort sem sýnir berglekt norðan Hofsjökuls (OS-2004 / 014)
Kort sem sýnir sprungulekt norðan Hofsjökuls (OS-2004 / 014)





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica