Spá um snjóflóðahættu - Austfirðir

  • lau. 20. apr.

    Töluverð hætta
  • sun. 21. apr.

    Töluverð hætta
  • mán. 22. apr.

    Nokkur hætta

Hláku er spáð um helgina og möguleiki á votum flóðum. Mikill snjór er ofarlega í fjöllum og inn til landsins undan NA hríðum síðustu vikna og búast má við veikleikum á milli misþéttra vindfleka. Nýsnævi er víða á svæðinu og hengjur til fjalla.

Spáin er gerð fyrir stór landsvæði og þarf ekki að vera lýsandi fyrir snjóflóðahættu í byggð. Hún er einkum gerð með ferðafólk í fjalllendi í huga og tekur bæði til snjóflóða af mannavöldum og veðurtengdra snjóflóða.

Snjóflóðavandi á svæðinu

Hláka um helgina eykur líkur á votum flóðum.

Lagskipting snævar og snjóþekjan

Mikill snjór er ofarlega í fjöllum eftir NA hríðarveður síðustu vikna. Búast má því við lagskiptum vindfleka, þar sem veikleiki gæti verið milli misþéttra vindfleka. Djúpur veikleiki hefur fundist í eldri snjó hátt til fjalla. Einhver nýr snjór safnaðist fyrripart vikunnar í hægum vindi hér og þar á svæðinu og hengjur eru víða í S-V viðhorfum. Spáð er hláku um helgina og þá aukast líkur á votum flóðum.

Nýleg snjóflóð

Nokkur lausaflóð féllu þegar sól fór að skína á þriðjudag og miðvikudag í Norðfirði. Allnokkur snjóflóð féllu á svæðinu í síðust viku eftir snjókomu og hlýindakafla.

Veður og veðurspá

Dálítil snjókoma á föstudagskvöld í S-átt. Hlýnar skarpt á laugardag og hlánar upp fyrir fjallstoppa. Líkur á skúrum. Snýst í V-átt á sunnudag og kólnar um tíma. Á mánudag er útlit fyrir þurrt og milt veður.

Spá gerð: 19. apr. 17:08. Gildir til: 20. apr. 19:00.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica