Fréttir
Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands, var einn þeirra sem flutti erindi á málstofunni.
Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands, var einn þeirra sem flutti erindi á málstofunni.

Áhrifa loftslagsbreytinga farið að gæta í rekstri sveitarfélaga

Vel heppnuð málstofa með sveitarfélögum á Veðurstofunni

3.10.2018

Það var góð mæting á málstofu með sveitarfélögum á suðvesturhorninu sem Veðurstofan hélt í morgun. Umræðuefnið var áhrif veðurs og loftslagsbreytinga á rekstur sveitarfélaga. Af umræðunum að dæma sem sköpuðust í lok málstofunnar er greinilegt að það er umtalsverð þörf fyrir frekari umræðu um málefni tengd loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á t.d. skipulagsvinnu sveitarfélaga. Þetta snýr ekki síst að gagnaöflum, greiningarvinnu og forsendugerð í kringum skipulagsvinnuna, sem er ef til vill sterkasta verkfæri sveitarfélaga til að bregðast við þeim áskorunum sem fylgja áhrifum loftslagsbreytinga. 

Áskoranir ekki síst í fráveitumálum

Fram kom einnig að áhrifa loftslagsbreytinga er þegar farið að gæta í rekstri sveitarfélaganna og þá sérstaklega í fráveitumálum. Til að mynda er úrkomuákefð að aukast og þeim tilfellum sem reynir verulega á frárennsliskerfi vegna yfirborðsvatns er að fjölga. Þessar breyttu aðstæður kalla nú þegar á aukna gagnaöflun og sérsniðna þjónustu. Hafa sum sveitarfélög, eins og Reykjavík, Garðabær og Árborg, þegar tekið skref í þá átt með uppsetningu veðurmælikerfa. Líta má á þessa málstofu sem fyrsta snertiflöt milli sveitarfélaganna og Veðurstofunnar varðandi þau brýnu málefni sem rædd voru. Fleiri málstofur með öðrum sveitarfélögum um sömu mál eru fyrirhugaðar á næstunni.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica