Fréttir
Jarðskjálftahrina í Mýrdalsjökli 29. ágúst 2016.

Jarðskjálftahrina í Kötluöskjunni

Enginn órói samfara þessum skjálftum

29.8.2016

Nú í nótt kl 01:41 byrjaði skjálftahrina norðarlega í Kötluöskjunni.

Tveir skjálftar mældust yfir fjórum stigum. Sá fyrri kl. 01:47:02 var M4,5 og sá seinni 20 sekúndum síðar M4,6. Fáeinir skjálftar voru um þrjú stig. Á annan tug skjálfta hafa mælst í kjölfarið.

Enginn órói er sjáanlegur samfara þessum skjálftum. Stærstu skjálftarnir fundust í skálanum í Langadal. Nokkrir skjálftar urðu sunnar í öskjunni um klukkustund fyrr. Áfram verður fylgst náið með framvindu mála.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica