Fréttir
mynd
Grímseyjarbelti, Skjálfandadjúp.

Jarðskjálftavirknin við Grímsey í nótt, 19. febrúar

19.2.2018

Snemma í morgun, kl. 05:38, varð skjálfti af stærð 5,2 með upptök um 14 km ANA af Grímsey og fannst hann vel víða um norðanvert landið. Fjórir aðrir skjálftar af stærð M4-4,5 mældust einnig í nótt og í morgun. Upptök skjálftanna voru á svonefndu Grímseyjarbelti, norðarlega í Skjálfandadjúpi, á um 10 km dýpi. Brotlausn stærsta skjálftans bendir til þess að upptök hans séu á norðlægri siggengissprungu og sé því tengdur gliðnun í jarðskorpunni. Jarðskjálftarnir eru hluti af hrinu sem hefur staðið frá lokum janúar og nær óslitið frá 14. febrúar. Þetta er mesta skjálftahrina á þessu svæði síðan í apríl 2013 þegar kröftug hrina varð í kjölfar skjálfta af stærðinni 5,5 á svipuðum slóðum.

Skjálftahrinur eru algengar á þessu skjálftabelti. Hrinur af svipaðri stærð og þessi urðu til dæmis í maí og september 1969, um jólaleytið 1980, í september 1988 og í apríl 2013. Auk skjálftavirkninnar er Grímseyjarbeltið eldvirkt og því eðlilegt að spurt sé hvort skjálftavirknin nú tengist kvikuhreyfingum í jarðskorpunni. Skjálftavirknin er sunnarlega í neðansjávareldstöðvakerfi sem kennt er við Nafir. Ekki hefur þó greinst skjálftavirkni sem líkist þeirri sem þekkt er í tengslum við kvikuhreyfingar. Samfelldar GPS-mælingar í Grímsey sýna heldur ekki mælanlega aflögun tengda þessari hrinu sem bendir til að jarðskjálftavirknin sé frekar tengd flekahreyfingum á flekaskilunum í Tjörnesbrotabeltinu.

Jarðvísindamenn á Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans.

mynd

Rauðu punktarnir á myndinni sýna upptök yfirfarinna skjálfta frá því á miðnætti, 19. febrúar; grænu punktarnir sýna upptök skjálfta frá byrjun janúar 2018. Skjálftar yfir 4 stig eru sýndir með svörtum stjörnum og hvíta stjarnan sýnir upptök M5,2 skjálftans. Svarthvíti boltinn sýnir brotlausn hans, siggengi. Gráu punktarnir tákna skjálfta á tímabilinu 1994-2017. Brúnu strikalínurnar sýna Húsavíkurmisgengið og svörtu örvarnar sýna hreyfingarstefnuna um Húsavíkur-Flateyjarmisgengið (HFF). Svörtu þríhyrningarnir sýna jarðskjálftamælistöðvar Veðurstofunnar.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica