Fréttir
Úrkomuspá fyrir aðfaranótt sunnudags.

Mikilli úrkomu spáð

Jafnvel hætta á vatnavöxtum, skriðuföllum og skyndiflóðum

8.9.2016

Eftir langvarandi þurrkatíð gefa veðurspár til kynna vætutíð í sumum landshlutum næstu daga.

Í dag hefur verið mikil úrkoma á Austfjörðum. Í Neskaupstað hafa þegar fallið uþb. 40 millimetrar á tveimur klukkustundum. Þessi mikla úrkoma veldur vexti í lækjum og ám og einnig aukinni skriðuhættu.

Í kvöld og aftur á laugardag er útlit fyrir talsverða úrkomu og mikið afrennsli á Ströndum. Á laugardag og sunnudag er spáð norðanátt og samfelldri rigningu á Tröllaskaga, sem og víðar á Norðurlandi. Í aðstæðum sem þessum er ekki hægt að útiloka staðbundin skyndiflóð sem gætu valdið tjóni.

Þegar líður á næstu viku ganga fleiri lægðir langt sunnan úr hafi upp að landinu. Þær eru í grunninn hlýjar og bera með sér talsverða úrkomu. Fari sem horfir gæti því skapast flóða- og skriðuhætta, t.d. á Norðurlandi.

Veðurstofan beinir þeim tilmælum til almennings að huga að holræsum og niðurföllum og gera viðeigandi ráðstafanir.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica