Fréttir
Þessu norðan áhlaupi veldur djúpt lægðasvæði austur af landi.
Þessu norðan áhlaupi veldur djúpt lægðasvæði austur af landi.

Norðan áhlaup snemma á ferðinni

Mögulega snjór í byggð á fimmtudag og föstudag á norðanverðu landinu

17.9.2018

Fyrsta norðan áhlaup haustsins er væntanlegt nú síðar í vikunni og er það frekar snemma á ferðinni að þessu sinni. Það er því enn ríkari ástæða til að fylgjast vel með veðurspám næstu daga.

Mögulega snjór í byggð á fimmtudag og föstudag

Á morgun, miðvikudag, má búast við að gangi í hvassa norðanátt með drjúgri rigningu norðan- og austanlands, en snjókomu í hærri fjöll. Á miðvikudagskvöld og aðfaranótt fimmtudags færist kaldara loft yfir landið og á fimmtudaginn er útlit fyrir að úrkoman á norðanverðu landinu verði á formi slyddu eða snjókomu langleiðina niður að sjávarmáli. Á föstudag er möguleiki á að aukin ákefð færist í úrkomuna og að hún verði ýmist á formi rigningar, slyddu eða snjókomu á norðurhelmingi landsins. Gert er ráð fyrir ört batnandi veðri á laugardag.

Enn óvissa í spám sérstaklega hvort úrkoma verður rigning eða snjór

Þessu norðan áhlaupi veldur djúpt lægðasvæði austur af landi. Enn er óvissa í spám varðandi braut lægðanna og dýpi þeirra og þar með hversu hvasst verður og hve neðarlega mörk rigningar og snjókomu verða. Engu að síður er norðan óveður af einhverju tagi líklegt. Viðvaranir vegna veðursins verðauppfærðar eftir því sem nýjir spáreikningar berast og tilefni er til.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica