Fréttir
mælingamaður á varnargarði við fljót

Norræn rannsóknarverkefni

Jöklarannsóknir, hagnýting vindorku o.fl.

17.6.2010

Alþjóðleg lokaráðstefna norræna rannsóknarverkefnisins Loftslag og orkukerfi (Climate and Energy Systems, CES) var haldin í Osló 31. maí til 2. júní s.l. Vísindamenn frá veðurstofum og vatnamælingastofnunum og starfsmenn orkufyrirtækja á Norðurlöndum og í Baltnesku löndunum kynntu rannsóknir á loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á orkuframleiðslu og orkukerfi landanna. Verkefnið er þriðja í röðinni frá 2001 og hafa þau öll verið undir stjórn Veðurstofu Íslands.

Umtalsverðar breytingar urðu í hitafari á Norðurlöndum á síðustu 20-30 árum og er sambærilegra breytinga að vænta til viðbótar til miðrar aldarinnar. Fram kom að mörg orkufyrirtæki hafa þegar tekið tillit til framkominna breytinga í veður- og vatnafari í rekstri sínum. Þau vænta frekari breytinga í náinni framtíð og hafa þær í huga við hönnun nýrra orkumannvirkja. Verulegra breytinga í rekstrarumhverfi orkufyrirtækja er einnig að vænta vegna margskonar óbeinna áhrifa á veðurfar, svo sem alþjóðlegra samninga um minni losun gróðurhúsalofttegunda og breyttra forsendna fyrir rekstri vatnsaflsvirkjana þegar vægi vindafls og annarra nýrra orkugjafa eykst í orkukerfunum.

Markmið CES verkefnisins var að greina líklegar breytingar í veðurfari fram undir miðja 21. öld og draga fram mikilvægustu áhrif á orkuframleiðslu og orkukerfi. Verkefnið var styrkt af Nordic Energy Research, sem er rannsóknasjóður fjármagnaður af norrænu ráðherranefndinni, svo og af norrænum orkufyrirtækjum. Landsvirkjun hefur verið íslenskur styrktaraðili og þátttakandi. Jafnframt hafa Orkustofnun, Vegagerðin og iðnaðarráðuneyti styrkt verkefnið.

Norræna ráðherranefndin ákvað undir lok síðasta árs að efla mjög rannsóknir á loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á umhverfi og samfélag og veitti jafnvirði 10 milljarða íslenskra króna til rannsóknarverkefna á þessu sviði sem eiga að fara fram á næstu fimm árum. Á grunni CES verkefnisins var sótt um stuðning til þriggja verkefna sem Íslendingar taka þátt í og leiða. Fyrstu ákvarðanir um styrkveitingar voru tilkynntar fyrir skömmu, samtals um tveir milljarðar króna til jöklarannsókna og 600 milljónir króna til rannsókna á hagnýtingu vindorku.

Veðurstofa Íslands, Háskóli Íslands og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands ásamt Landsvirkjun og Landsneti taka þátt í tveimur þeirra verkefna sem fengu styrki. Umfang rannsóknanna hér á landi er 40-50 milljónir króna árlega og þær munu gera viðkomandi stofnunum kleift að efla mjög rannsóknir á þessum sviðum á næstu árum. Skapast munu sóknarfæri meðal annars með ráðningu doktorsnema og nýdoktora, en einnig sérfræðinga í leiðandi verkefni á sviði loftslagsrannsókna og nýtingu endurnýjanlegrar orku.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica