Fréttir
Undrið litla: Stokkhólmssamningurinn og baráttan gegn POPs – sköpunarsaga

Sköpunarsaga samkomulags um vernd hafsins

11.8.2017

Nýlega kom út bókin Undrið litla: Stokkhólmssamningurinn og baráttan gegn POPs – sköpunarsaga eftir Davíð Egilson. Hún fjallar um átta ára samningaviðræður sem snerust um að alþjóðasamfélagið dragi úr losun þrávirkra lífrænna efna. Íslendingar áttu þar drjúgan hlut að máli.

Á bókarkápu segir að Íslendingar hafi sem fiskveiðiþjóð haft mikinn áhuga á vernd hafsins og leitað leiða til að losun mengandi efna í hafið skaðaði ekki afurðir þeirra. Þegar líða fór á seinni hluta síðustu aldar fóru sjónir manna að beinast að hættu sem gæti stafað af lífrænum efnum sem brotnuðu hægt niður í náttúrunni.

Þessi efni, og þá sérstaklega svokölluð varnarefni, var að finna í mælanlegu magni á stöðum þar sem þau höfðu aldrei verið notuð. Þau geta verið skaðleg vegna niðurbrotsefnanna, lífmagnast í gegnum fæðuvefinn og skapað hættu á alvarlegum áhrifum á heilsufar fólks og umhverfi. Mælingar hér við land sýndu þessi efni greinilega þó að styrkurinn væri lítill. Mikilvægt þótti að alþjóðasamfélagið hlutaðist til um að stöðva þessa þróun því ljóst var að einangraðar aðgerðir einstakra þjóða myndu duga skammt.

Þetta ferli stóð í átta ár. Upphaflega var það átak til að draga úr mengun sjávar frá athöfnum manna á landi en færist yfir í aðgerðir gegn þrávirkum lífrænum efnum. Afraksturinn var alþjóðasamningur sem ber nafnið Stokkhólmssamningurinn og myndar alþjóðlegan ramma um takmörkun á þessum efnum. Stokkhólmssamningurinn hefur verið einkar árangursríkur og stuðlað að bættri efnanotkun um heim allan.

Bókin er 148 blaðsíður með myndefni og skrá um hugtök og skammstafanir. Efnið í megindráttum sett fram í tímaröð og spannar einkum tímabilið frá um 1970 til upphafs 21 aldar. Bókin er aðgengileg og nýtist jafnt leikmönnum sem sérfræðingum. Hún hefst á ágripi fyrir óþolinmóða og henni lýkur á vangaveltum um samninga og samningatækni. Höfundur gaf bókina út en Forlagið sér um dreifingu.

Davíð Egilson

Davíð Egilson var fulltrúi Íslands í alþjóðlegu samstarfi og samningagerð um vernd sjávar 1991–2000. Hann er fagstjóri vatnafræðirannsókna á Veðurstofu Íslands. 





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica