Fréttir

Tíðarfar í ágúst 2018

Stutt yfirlit

3.9.2018


Ágúst var fremur svalur mánuður. Hiti var nærri meðallagi áranna 1961 til 1990 en nær allsstaðar undir meðallagi síðustu tíu ára, einna síst austanlands. Úrkoma var meiri en í meðallagi norðan- og austanlands en fremur sólríkt var á vesturhluta landsins.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík í ágúst var 10,4 stig, 0,1 stigi ofan meðallags áranna 1961 til 1990, en -0,9 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn 9,6 stig, -0,3 stigum neðan meðallags áranna 1961 til 1990, og -1,2 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 9,7 stig og 10,2 stig á Höfn í Hornafirði.

Meðalhita og vik á fleiri stöðvum má sjá í töflu.

stöð meðalhiti °C vik 1961-1990 °C röð af vik 2008-2017 °C
Reykjavík 10,4 0,1 74 148 -0,9
Stykkishólmur 9,7 0,1 84 til 86 173 -1,0
Bolungarvík 9,1 0,4 64 til 65 121 -0,7
Grímsey




Akureyri 9,6 -0,3 81 138 -1,2
Egilsstaðir 9,6 0,0 37 64 -0,5
Dalatangi 9,1 0,8 26 81 -0,1
Teigarhorn 9,4 0,6 44 til 45 146 -0,3
Höfn í Hornaf. 10,2


-0,6
Stórhöfði 9,7 0,1 90 142 -1,0
Hveravellir 6,2 0,0 36 54 -1,1
Árnes 10,4 0,2 66 139 -0,7

Meðalhiti og vik (°C) í ágúst 2018

Ágúst var í svalara lagi á landinu öllu. Hitavik sjálfvirkra stöðva miðað við síðustu tíu ár voru að mestu neikvæð (sjá mynd). Að tiltölu var hlýjast á Austurlandi en kaldast á Norðurlandi. Jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest 0,2 stig á Seley, en neikvætt hitavik var mest -1,6 stig á Gjögurflugvelli. 


Hitavik sjálfvirkra stöðva í ágúst 2018 miðað við síðustu tíu ár.

Meðalhiti mánaðarins var hæstur við Lómagnúp 11,1 stig en lægstur 2,4 stig á Brúarjökli. Í byggð var meðalhitinn lægstur 7,3 stig á Gjögurflugvelli.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 20,8 stig á Reykjum í Fnjóskadal þ. 12. Mesta frost í mánuðinum mældist -5,9 stig á Brúarjökli þ. 30. Í byggð mældist mesta frostið -4,5 stig á Torfum þ. 30.

Úrkoma

Úrkoma var undir meðallagi á vestanverðu landinu en yfir meðallagi norðan- og austanlands.

Úrkoma í Reykjavík mældist 48,1 mm sem er um 78% af meðalúrkomu áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman 53,3 mm og er það 56% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 25,1 mm og 91,0 mm á Höfn.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 10 í Reykjavík, 2 færri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 12 daga mánaðarins, 5 fleiri en í meðalári.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 185, sem er 30 fleiri en að meðallagi í ágúst. Á Akureyri mældust 117 sólskinsstundir, 19 færri en í meðalári.

Vindur

Vindur á landsvísu var um 0,2 m/s undir meðallagi. Austanáttir voru ríkjandi og norðanáttir voru algengari en þær suðlægu. Skýstrókar ollu miklu tjóni á bænum Norðurhjáleigu í Álftaveri þ. 24.

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist 1004,6 hPa og er það 4,0 hPa undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Hæstur mældist loftþrýstingurinn 1016,2 hPa í Grímsey þ. 4. Lægsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 985,9 hPa í Surtsey þ. 17.

Sumarið það sem af er (júní til ágúst)

Sumarið var hlýtt á Austurlandi. Á sunnan- og vestanverðu landinu var fremur svalt og sérlega sólarlítið. Heildarúrkoma og úrkomudagafjöldi var vel yfir meðallagi á Norðurlandi.

Meðalhiti í Reykjavík var 9,9 stig sem er jafnt meðaltali áranna 1961 til 1990 en -1,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Þessir þrír mánuðir hafa ekki verið eins kaldir í Reykjavík síðan árið 1993. Á Akureyri var meðalhiti mánaðanna þriggja 10,6 stig, 0,7 stigum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990 en -0,1 stigi undir meðalhita síðustu tíu ára.

Úrkoma í Reykjavík mældist 198,8 mm sem er 20% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úrkoman 160,4 mm sem er 68 % umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri voru 9 fleiri en í meðalári í Reykjavík og 14 fleiri á Akureyri.

Sólskinsstundir mældust 345 í Reykjavík, 140 færri en að meðaltali 1961 til 1990 og um 235 stundum færri en síðustu tíu ár. Mánuðirnir þrír hafa ekki verið eins sólarlitlir í Reykjavík síðan árið 1984. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 431 sem er 39 stundum undir meðallagi áranna 1961 til 1990 en 55 stundum færra en að jafnaði í sömu mánuðum síðustu tíu ára.

Fyrstu átta mánuðir ársins

Meðalhiti í Reykjavík fyrstu átta mánuði ársins var 5,5 stig, sem er 0,6 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990, en -0,6 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Meðalhitinn raðast í 40.sæti á lista 148 ára. Á Akureyri var meðalhitinn 5,3 stig, sem er 1,3 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990, en 0,2 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Meðalhitinn þar raðast í 14. sæti á lista 138 ára.

Úrkoma hefur verið 37% umfram meðallag í Reykjavík og 33% umfram meðallag á Akureyri.

Skjöl fyrir ágúst

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í ágúst 2018 (textaskjal).
Daglegtyfirlit mánaðarins á fjórum ákveðnum veðurstöðvum er hægtsækja í sérstaka töflu.










Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica