Fréttir
Sólarupprás 24.12.2016
Sólarupprás í Reykjavík 24. desember 2016. Ljósmynd: Hjörleifur Kristjánsson.

Tíðarfar í desember 2016

Stutt yfirlit

3.1.2017

Tíð var lengst af hagstæð og samgöngur greiðar nema fáeina daga undir lok mánaðar. Óvenjuhlýtt var í veðri og um austanvert landið var mánuðurinn sums staðar sá hlýjasti frá upphafi mælinga og í hópi þeirra hlýjustu um land allt. Úrkomusamt var og dimmt. Ekki var mikið um illviðri að undanskildum fáeinum hvössum dögum undir lok mánaðarins og urðu þá nokkrar samgöngutruflanir. Þá kólnaði nokkuð og var snjór á jörðu um allt land að kalla yfir jólahátíðina. Þann snjó tók þó fljótt upp aftur.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík mældist 3,6 stig og er það 3,8 stigum ofan meðalhita áranna 1961 til 1990, en 3,2 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára.  Á Akureyri var meðalhitinn 2,8 stig, 4,7 stigum ofan meðallags 1961 til 1990 og 3,8 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 3,0 stig og 4,0 stig á Höfn í Hornafirði.  

Meðalhita og vik á fleiri stöðvum má sjá í töflu.

stöð meðalh. °C vik 1961-1990 röð af vik 2006-2015
Reykjavík 3,6 3,8 4 146 3,2
Stykkishólmur 3,0 3,7 3 171 2,7
Bolungarvík 2,7 3,6 4 119 2,7
Grímsey 3,5 4,4 2 til 3 143 2,7
Akureyri 2,8 4,7 2 135 3,8
Egilsstaðir 2,5 4,7 1 62 3,9
Dalatangi 4,7 4,1 1 78 2,9
Teigarhorn 3,8 3,9 1 144 2,8
Höfn í Hornaf. 4,0 3,0
Stórhöfði 4,0 2,6 7 140 2,0
Hveravellir  -1,7 4,6 2 52
Árnes 2,3 4,2 4 137 2,6

Meðalhiti og vik (°C) í desember 2016.

Að tiltölu var hlýjast norðaustanlands, 4,5 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára í Möðrudal. Kaldast að tiltölu var undir Eyjafjöllum þar sem hiti var innan við 2 stig ofan meðallags sömu ára.

Meðalhiti mánaðarins var hæstur í Surtsey, 4,9 stig. Lægstur var meðalhitinn í Sandbúðum, -3,0 stig. Á Dyngjujökli var meðalhitinn  -7,7 stig, en ekki er um staðalmæliaðstæður að ræða þar. Í byggð var meðalhitinn lægstur í Svartárkoti, -0,5 stig.

Mest frost í mánuðinum mældist -24,1 stig á Dyngjujökli þann 31., og -17,7 við Setur sama dag. Mest frost í byggð mældist -15,9 stig á Haugi í Miðfirði þann 21. Mesta frost á mannaðri stöð mældist á Grímsstöðum á Fjöllum þann 21., -14,0 stig.  Hæsti hiti mánaðarins mældist 16,2 stig á Dalatanga þann 4. Þá mældist hámarkið 15,8 stig á mönnuðu stöðinni á sama stað.

Hámarkið á Dalatanga þann 4. er nýtt landsdægurhámark, einnig var sett nýtt landsdægurhámark þann 27. þegar hiti fór í 15,6 stig á Sauðanesvita.

Ský yfir Reykjavík 24.12.2016. Reykjavík, Fossvogur 24.12.2016. Ljósmynd: Guðrún Pálsdóttir.

Úrkoma

Úrkoma var víðast hvar meiri en í meðallagi, einna mest að tiltölu um landið norðvestanvert og sums staðar á Austfjörðum.

Úrkoman í Reykjavík mældist 146,7 mm, tæp 90 prósent umfram meðallag og sú mesta í desember síðan 2007. Á Akureyri mældist úrkoman nú 81,7 mm, rúm 50 prósent umfram meðallag, en samt nokkru minni en í undanförnum fjórum desembermánuðum. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 160,6 mm, meira en tvöfalt meðallag og sú mesta í desember síðan 2007. Á Höfn í Hornafirði mældist úrkoman 235,0 mm.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri í Reykjavík voru 23, níu fleiri en í meðalári, aðeins einn dagur var alveg þurr. Á Akureyri mældist úrkoma 1 mm eða meiri 15 daga, fjóra daga umfram meðallag.  

Snjór

Alhvítt var sjö morgna í Reykjavík, sex færri en að meðaltali 1971 til 2000. Á Akureyri voru alhvítu dagarnir aðeins 5, 17 færri en í meðalári, og hafa ekki verið jafnfáir þar í desember síðan 2002.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust aðeins 3,2, 9 færri en í meðaldesember og hafa ekki mælst svo fáar í desember síðan 2004. Sólskinsstundir eru aldrei margar í skammdeginu. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 0,3, og er það í meðallagi.

Vindur

Vindhraði var í ríflegu meðallagi, um 0,3 m/s umfram meðallag síðustu tíu ára á sjálfvirku stöðvunum. Suðlægar áttir voru mun algengari og stríðari en þær norðlægu. Mjög hvasst var af suðri og síðar suðvestri víða um land 27. og 28. desember.

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist  994,1 hPa og er það -7,0 hPa undir meðallagi áranna 1961 til 1990. Hæstur mældist þrýstingurinn 1040,1 hPa á Reykjavíkurflugvelli þann 31. kl.24. , en lægstur 944,1 hPa á Gufuskálum þann 20.

Skjöl fyrir desember

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í desember 2016 (textaskjal)

Þessa grein, Tíðarfar í desember 2016, er einnig hægt að lesa sem pdf

Daglegt yfirlit mánaðarins á fjórum ákveðnum veðurstöðvum er hægt sækja í sérstaka töflu





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica