Fréttir
Glitský
Glitský, Fellabæ 2. janúar 2017.

Tíðarfar í janúar 2017

Stutt yfirlit

1.2.2017

Tíð var lengst af hagstæð og samgöngur greiðar. Fremur hlýtt var í veðri og með snjóléttara móti á láglendi. Úrkoma var ekki fjarri meðallagi. Minna var um illviðri en venjulegt er á þessum tíma árs.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík mældist 1,4 stig og er það 2,0 stigum ofan meðallags áranna 1961 til 1990, en 0,4 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára.  Á Akureyri var meðalhitinn 0,2 stig, 2,4 stigum ofan meðallags 1961 til 1990 og 0,6 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhitinn 0,8 stig og 1,8 stig á Höfn í Hornafirði.  

Meðalhita og vik á fleiri stöðvum má sjá í töflu.

stöð meðalh vik 1961-1990 röð af vik 2007-2016
Reykjavík 1,4 2,0 25 147 0,4
Stykkishólmur 0,8 2,2 28 172 0,2
Bolungarvík 0,2 1,4 35 120 -0,2
Grímsey 0,7 1,4 21 144 -0,3
Akureyri 0,2 2,4 27 til 28 136 0,6
Egilsstaðir -0,2 2,3 16 63 0,4
Dalatangi 2,3 1,9 24 79 0,2
Teigarhorn 1,6 1,8 32 145 0,3
Höfn í Hornaf. 1,9 0,5
Stórhöfði 2,6 1,3 32 141 0,0
Hveravellir  -4,2 2,5 13 53 0,4
Árnes -0,1 1,9 30 til 31 138 0,3

Meðalhiti og vik (°C) í janúar 2017.

Að tiltölu var hlýjast inn til landsins á Norðaustur- og Austurlandi og sums staðar suðvestanlands, 1,0 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára við Upptyppinga. Kaldast að tiltölu var norðan til á Vestfjörðum. Vék hiti á Hornbjargsvita þar mest frá meðallagi síðustu tíu ára og var -0,9 stigum neðan þess.

Meðalhiti mánaðarins var hæstur í Surtsey, 3,8 stig. Lægstur var meðalhitinn í Sandbúðum, -5,7 stig. Í byggð var meðalhitinn lægstur á Grímsstöðum á Fjöllum, -3,1 stig.

Mest frost í mánuðinum mældist -24,7 stig í Möðrudal þann 14. Mesta frost á mannaðri stöð mældist á Grímsstöðum á Fjöllum þann 14., -20,4 stig.  Hæsti hiti mánaðarins mældist 15,3 stig á Sauðanesvita þann 15..

Landsdægurhámarksmet féll þegar hiti komst í 14,1 stig á sjálfvirku stöðinni á Skjaldþingsstöðum þann 2. Eldra metið, 13,6 stig, var sett á mönnuðu stöðinni á sama stað árið 2002.

Úrkoma

Úrkoma víðast hvar ekki fjarri meðallagi og mældist 83,4 mm í Reykjavík. Er það 10 prósent umfram meðallag áranna 1961 til 1990, en 90 prósent meðallags síðustu tíu ára.

Á Akureyri mældist úrkoman nú 49,9 mm, 90 prósent meðalúrkomu. Í Stykkishólmi mældist úrkoman 82,8 mm.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri í Reykjavík voru 18, fimm fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoma 1 mm eða meiri 9 daga, tveimur færri en að meðallagi.  

Snjór

Alhvítt var 13 morgna í Reykjavík, tveimur færri en að meðaltali 1971 til 2000. Á Akureyri voru alhvítu dagarnir líka 13, tíu færri en í meðaljanúar og hafa ekki verið jafnfáir í mánuðinum síðan 2006.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust aðeins 17,7, níu færri en í meðaljanúar. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 1,6, fimm stundum undir meðallagi – en langoftast er sólarlítið á Akureyri í janúar.

Sveppaský

Steðjaský séð frá Hafnarfirði 27. janúar 2017. Ljósmynd: Hjálmar Sigurðsson.

Vindur

Vindhraði var lítillega undir meðallagi síðustu tíu ára, um -0,3 m/s undir því á sjálfvirku stöðvunum.  Suðlægar áttir voru algengari en þær norðlægu, en austan- og vestanáttir skiptust nokkuð á. Mesta hvassviðrið gerði þann 5., þá af suðvestri og vestri.

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur í Reykjavík mældist  1002,6 hPa og er það 2,3 hPa yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Hæstur mældist þrýstingurinn 1041,0 hPa á Reykjavíkurflugvelli og Eyrarbakka þann 1., en lægstur 972,3 hPa í Grindavík þann 31.

Skjöl fyrir janúar

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í janúar 2017 (textaskjal).

Daglegt yfirlit mánaðarins á fjórum ákveðnum veðurstöðvum er hægt sækja í sérstaka töflu.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica