Fréttir
Vedur 23 februar 2017

Varað við mjög slæmu veðri

23.2.2017

Veðurstofa Íslands vekur athygli á að mjög slæmu veðri er spáð á morgun, föstudaginn 24. febrúar. Búast má við að vindhraði nái víða 20-28 m/s á sunnan- og vestanverðu landinu eftir hádegi á morgun, ásamt mjög hvössum vindhviðum, allt að 40 m/s.

Veðrinu fylgir talsverð úrkoma, fyrst snjókoma en síðan slydda eða rigning. Viðbúið er að skyggni verði víða slæmt og ferðaveður sums staðar mjög slæmt. Á Hellisheiði fer að snjóa snemma morguns og má búast við lélegu skyggni þar strax í fyrramálið.Einnig er vakin athygli á því að búist er við að versta veðrið gangi yfir Reykjanesbrautina á milli kl. 14 og 17. Snýst í mun hægari sunnan- og suðvestanátt suðvestantil annað kvöld, með skúrum eða éljum.

Veðrið gengur til norðausturs yfir land og hvessir mikið á Norður og Austurlandi um miðjan dag. Þar má búast við versta veðrinu annað kvöld, suðaustan 20-28 m/s með vindhviðum jafnvel yfir 40 m/s til fjalla.  Búast má við að veðrið gangi niður norðaustantil eftir miðnætti. Talsverði eða mikilli rigningu er spáð um tíma suðaustanlands seint á morgun.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica