Fréttir
Hafísinn er nú 14 sjómílur norður af Kögri, en smá flekkur með ísdreifum virðast vera um 8 sjómílur norður af Hælavíkurbjargi

Viðvörun vegna hafíss

6.6.2018

Nýjustu ratsjármyndir (kl:08:21 6.júní) gefa til kynna að hafís sé um 14 sjómílur norður af Kögri. Eins virðist vera ísdreif sé um 8 sjómílur norður af Hælavíkurbjargi. Stöku borgarís er á svæðinu og mikið um gisinn ís og töluverða bráðnun. Eftir viðvarandi suðvestanátt á Grænlandssundi að undanförnu færist ís nær landi og búast má við að svo verði áfram fram á laugardag. 

Nánari upplýsingar má finna hér





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica