Fréttir
Óveður í Mývatnssveit 2012
Óveður í Mývatnssveit 2012.

Viðvörun vegna vetrarveðurs

16.11.2016

Búist er við norðan hvassviðri eða stormi með talsverðri ofankomu norðantil á landinu seint í kvöld og á morgun fimmtudag. Einnig er búist við mjög sterkum vindhviðum undir Eyjafjöllum og Vatnajökli á morgun.

Nánar um útlitið: Norðlæg átt, 10-18 m/s með éljum um landið norðanvert, en hvessir og bætir í ofankomu í kvöld. Norðan hvassviðri eða stormur (15-23 m/s) og snjókoma norðantil á landinu í nótt og á morgun og talsverð úrkoma á köflum og slæmt skyggni. Undir hádegi á morgun hvessir mjög undir Eyjafjöllum og síðdegis undir Vatnajökli en á þeim slóðum á búast við vindhviðum yfir 40 m/s. Fólk er hvatt til að fylgjast vel með veðri og færð og að vera ekki á vanbúnum bifreiðum á þessum slóðum.

Vegna stórstreymis má búast við mjög hárri sjávarstöðu og mikilli ölduhæð við norðurströndina.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica