Fréttir
Útsýni yfir Öskju og Víti, frá Norðri. Mynd: Michelle Parks/Veðurstofa Íslands

Hægt hefur á landrisinu í Öskju

Ekkert landris mælst á nokkrum mælum frá því í lok ágúst

3.10.2023

Mælingar sýna að hægt hefur á landrisinu í Öskju frá því í byrjun ágúst. Þetta er eitt af því sem var rætt á stöðufundi sérfræðinga Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands og Almannavörnum sem haldinn var á Veðurstofunni. Á nokkrum GPS-mælum cGNSS sem staðsettir eru við Öskju hefur ekkert landris mælst frá því í lok ágúst.  Á sama tímabili eru engar vísbendingar um aukna jarðskjálftavirkni eða óeðlilegar breytingar á jarðhitavirkni í Öskju. Á þessari stundu er ekki ljóst hvað  veldur þessari breytingu á þenslunni, en mögulega hefur innflæði kviku stöðvast eða að kvikan hefur fundið annan farveg sem dregur úr kvikuþrýstingi undir eldstöðinni.

Reglulegar mælingar við Öskju hafa áður sýnt tímabil sem einkennast af landsigi og eitt tímabil sem einkenndist af landrisi án þess að til eldgoss komi. Á þessu stigi er ekkert hægt að fullyrða um hver þróun mála verður í Öskju og Veðurstofa Íslands heldur áfram að fylgjast grannt með svæðinu sem enn er á óvissustigi Almannavarna. Unnið verður frekar úr þeim gögnum sem liggja fyrir m.a. með líkangerð til að útskýra hvað veldur þessum breytingum í eldstöðinni. Einnig var nýrri skjálftastöð var bætt við í síðustu viku vestan við Öskju til að bæta staðsetningu og dýpt jarðskjálfta.

Niðurstöður mælinga frá því í sumar gáfu engar vísbendingar um aukna virkni

Vísindamenn voru við mælingar í Öskju í ágúst og söfnuðu m.a. gögnum um gasútstreymi til að meta hvort aukning hafi orðið á jarðhita á svæðinu. Þær mælingar, ásamt þeim gögnum sem lágu fyrir í lok ágúst, gáfu engar vísbendingar um aukna jarðhitavirkni í Öskju eða um að kvika væri að færast nær yfirborðinu.

Það er talsverð áskorun að vakta eldstöðina yfir vetrartímann, en farið verður í Öskju til að fylgjast með og bæta við tækjabúnaði, til dæmis myndavélum og jarðhitamælum.

Ef engar breytingar verða á virkni í Öskju, verða frekari upplýsingar um stöðuna birtar eftir mánuð.

KASK-grafcGNSS gögn frá KASK staðsett í sigdæld í Öskju. Tímaröðin sýnir þróun aflögunar frá nóvember 2022 í norður-, austur og upphlutanum og græni punkturinn sýnir nýjustu mælingu sem náðst hefur.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica