Fréttir
Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í janúar miðað við síðustu tíu ár (2014 til 2023).

Tíðarfar í janúar 2024

Stutt yfirlit

2.2.2024

Janúar var tiltölulega kaldur og hiti var undir meðallagi á mest öllu landinu. Umhleypingasamt veður einkenndi síðasta hluta mánaðarins. Samgöngur riðluðust talsvert vegna hríðarveðurs og einhvað var um rafmagnstruflanir vegna eldinga.

Hiti

Meðalhiti í Reykjavík í janúar var -0,1 stig. Það er 0,8 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,5 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn -1,5 stig, 1 stigi undir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,7 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhiti mánaðarins -0,2 stig og 0,1 stig á Höfn í Hornafirði.

Meðalhita og vik frá fleiri stöðum má sjá í eftirfarandi töflu.

stöð meðalhiti °C vik 1991-2020 °C röð af vik 2014-2023 °C
Reykjavík -0,1 -0,8 70 til 71 154 -0,5
Stykkishólmur -0,2 -0,4 66 179 -0,1
Bolungarvík -0,3 -0,1 50 127 0,1
Grímsey -0,1 -0,6 56 til 57 151 -0,6
Akureyri -1,5 -1,0 70 til 71 144 -0,7
Egilsstaðir -2,5 -1,5 42 70 -1,6
Dalatangi 1,0 -0,7 46 86 -0,8
Teigarhorn -0,2 -1,2 88 til 89 152 -1,3
Höfn í Hornaf. 0,1


-1,0
Stórhöfði 1,9 -0,4 60 til 61 147 -0,1
Hveravellir -6,1 -1,1 33 60 -0,6
Árnes -1,7 -0,8 70 145 -0,5

Meðalhiti og vik (°C) í janúar 2024

Janúar var tiltölulega kaldur og hiti var undir meðallagi á mest öllu landinu. Að tiltölu var kaldast á Austurlandi en hlýrra á vestari hluta landsins. Jákvætt hitavik miðað við síðustu tíu ár var mest 0,2 stig á Skarðsheiði en neikvætt hitavik var mest -1,9 stig á Eskifirði.


Hitavik (°C) sjálfvirkra stöðva í janúar miðað við síðustu tíu ár (2014 til 2023).

Meðalhiti mánaðarins var hæstur í Surtsey, 3,0 stig. Lægstur var meðalhitinn við Sátu norðan Hofsjökuls, -7,2 stig. Í byggð var meðalhitinn lægstur í Möðrudal, -6,2 stig.

Hæsti hiti mánaðarins mældist 14,1 stig á Sauðanesvita þ. 8. Mest frost í mánuðinum mældist -24,9 stig á Sauðárkróksflugvelli.

Úrkoma

Úrkoma í Reykjavík mældist 92,7 mm sem er um 5% umfram meðallag áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist úrkoman 36,4 mm sem er um 60% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Í Stykkishólmi mældist úrkoman í janúar 102,2 mm og 130,6 mm á Höfn í Hornafirði.

Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm eða meiri í Reykjavík voru 18 sem eru 3 fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoma 1,0 mm eða meiri 11 daga sem eru jafn margir og í meðalári.

Snjór

Það voru 15 alhvítir dagar í Reykjavík í janúar, sem er 3 dögum fleiri en að meðaltali 1991 til 2020. Alhvítir dagar á Akureyri voru 19, þremur færri en að meðaltali 1991 til 2020.

Sólskinsstundafjöldi

Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 15,6, sem er 6,9 stundum undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 5,7 sem er tæpri einni stund undir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Vindur

Vindur á landsvísu var 0,3 m/s undir meðallagi. Hvassast var þ. 16. (norðanátt) og þ. 25. (suðvestanátt).

Loftþrýstingur

Meðalloftþrýstingur mánaðarins var 1000,5 hPa hPa í Reykjavík. Það er 3,2 hPa yfir meðallagi áranna 1991 til 2020.

Hæstur mældist loftþrýstingurinn 1041,7 hPa á Fagurhólsmýri þ. 10 og í Skaftafelli þ. 11. Lægsti loftþrýstingur mánaðarins mældist 957,2 hPa á Ísafirði þ. 25.

Skjöl fyrir janúar

Meðalhiti á sjálfvirkum veðurstöðvum í janúar 2024 (textaskjal).
Daglegt yfirlit mánaðarins á þremur veðurstöðvum er hægt að sækja í sérstaka töflu.







Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica