Fréttir
Grace

Íslensku jöklarnir vigtaðir utan úr geimnum

Rýrnun jöklanna veldur aflögun þyngdarsviðs jarðar nærri Íslandi

25.1.2017

Afkomumælingar Jarðvísindastofnunar Háskólans og Veðurstofu Íslands sýna að íslenskir jöklar hafa hopað og þynnst jafnt og þétt síðan 1995 sem nemur um 10 km³ íss á ári að meðaltali. Þessi rýrnun jöklanna veldur aflögun þyngdarsviðs jarðar nærri Íslandi sem kemur fram í mælingum þýsk/bandarísku GRACE gervihnattanna. Þeir voru upprunalega til þess ætlaðar að mæla breytingar á ísbreiðum heimskautanna, Suðurskautsjöklinum og Grænlands­jökli, og hafa gert mönnum kleift að reikna hvernig þessir stærstu jöklar heims bregðast við hlýnun loftslags af mannavöldum. GRACE mælingarnar fara þannig fram að fjarlægð milli tveggja gervihnatta á braut um jörðu í 500 km hæð er mæld með mikilli nákvæmni og breytingar á fjarlægðinni not­aðar til þess að reikna breytingar í þyngdarsviði jarðar, sbr. mynd. Þessar mælingar hafa m.a. sýnt að rýrnun Græn­lands­jökuls tvöfaldaðist og rýrnun Suðurskautsjökulsins þrefaldaðist frá ca. 2006 til 2013 og færðu mönn­um heim sanninn um að hlýnandi loftslag hefur nú þegar haft mikil áhrif á þessa stærstu jökla jarðar.

 GRACE gervihnattamælingarnar voru hins vegar ekki upprunalegar ætlaðar til þess að fylgjast með breytingum á „minni“ jöklum, eins og íslensku jöklunum. Til þess að nýta þær til mælinga á minni jöklum þarf að taka tillit til margra þátta og beita ýmsum leiðréttingum, m.a. þarf að taka sérstakt tillit til áhrifa landriss vegna minnkandi jökulfargs síðustu öldina á þyngdarsviðið en slíkt landris er mjög hratt hér á landi, sérstaklega á Suðausturlandi. Slík greining hefur nú verið unnin fyrir íslenska jökla í samstarfi vísindamanna dönsku geimvísindastofnunarinnar, DTU-Space, og íslenskra jöklafræðinga í norræna rannsóknarverkefninu SVALI . Niðurstaðan er í samræmi við fyrirliggjandi afkomumælingar um að íslensku jöklarnir hafa samtals rýrnað um meira en 200 km³ síðan 1995, sbr. mynd 3, eins og fram kemur í nýbirtri grein ívísindaritinu Geophysical Journal International . Sökum þess að mælingarnar sýna með beinum hætti breytingar á massa jöklanna má segja að íslensku jöklarnir hafi verið vigtaðir úr geimnum með þessum mælingum.

 Niðurstöður GRACE mælinganna sýna að landris vegur að hálfu leyti upp á móti áhrifum rýrnunar íslensku jöklanna á þyngdarsviðið í grennd við Ísland þannig að miklu skiptir að taka tillit til þessara áhrifa við túlkun mælinganna. Jafnframt kemur í ljós að rýrnun Grænlandsjökuls hefur mikil áhrif á breytingar á þyngdarsviði í grennd við Ísland eins og sést greinilega á mynd. Talið er að þessi áhrif frá Grænlandsjökli muni ráða miklu um hækkun sjávarborðs við Ísland á þessari öld og valda því að hún verði innan við helmingur af meðaltali yfir heimshöfin. Orsökin er sú að þegar Grænlandsjökull rýrnar mun ísmassi hans ekki toga sjóinn í sama mæli í átt til Grænlands og hann gerir nú.

GRACE gervihnettirnir tveir eru á braut um jörðu í um 500 km hæð með um 200 km fjarlægð. Breytingarnar á fjarlægðinni milli þeirra eru mældar með nákvæmni upp á nokkra milljónustu hluta úr metra og á þann hátt má fylgjast með breytingum í þyngdarsviði jarðar. (Mynd efst er frá John C. Ries, The University of Texas Center for Space Research.)

Mynd1

Mynd2

Breyting á styrk þyngdarsviðs á N-Atlantshafi og yfir Grænlandi og austanverðu Kanada [micro-Gal/ári] skv. GRACE gervihnattamælingum (efri mynd) og eftir að áhrif jarðskorpuhreyfinga og breytinga á massa íss á Grænlandi hafa verið dregin frá (neðri mynd). Ljósblái bletturinn yfir Íslandi sem fram kemur á neðri myndinni endurspeglar rýrnun íslensku jöklanna.

Grace-mass-balanceÁrlegar mælingar á afkomu íslensku jöklanna 1992–2012 (gögn frá Jarðvísindastofnun Háskólans og Veðurstofu Íslands) og niðurstöður greiningar á GRACE-mælingum 2004–2010.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica