Fréttir
ljosmynd
Snjóflóð féll á leiðigarð snjóflóða á Siglufirði 20. eða 21, nóvember 2017.

Snjóflóð féllu i síðustu viku

27.11.2017

Í veðrinu sem gekk yfir norðurhluta landsins í síðustu viku féllu mörg snjóflóð, einkum á norðanverðum Vestfjörðum og á Tröllaskaga. Snjóflóð lokuðu vegum og nokkuð stórt snjóflóð féll á varnargarðinn Stóra-Bola sem er leiðigarður undir Strengsgili á Siglufirði. Garðurinn sinnti hlutverki sínu vel og beindi flóðinu í átt frá byggðinni og nam það staðar við garðendann.

Eins og sjá má á meðfylgjandi loftmynd er ekki ólíklegt að flóðið hefði náð niður í byggð ef garðurinn hefði ekki beint því til suðurs. Sjá mátti ummerki um flóðið á garðinum sem benda til þess að það hafi náð upp í hæð sem samsvarar u.þ.b. þriðjungi af hæð garðsins, sem er 18 m hár.

Flóðið bar með sér stóra grjóthnullunga og það reif með sér girðingu og snjódýptarmæli sem komið hafði verið fyrir í efri hluta hlíðarinnar.

loftmynd

Útlínur snjóflóða og snjóflóðavarnir á Siglufirði,

Suðurhluti Siglufjarðar var eitt af þeim svæðum í byggð þar sem snjóflóðahætta var hvað mest fyrir byggingu garðsins sem reistur var árið 1999. Á hann hafa áður fallið nokkur flóð eins og sjá má á meðfylgjandi korti.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica