Árið 2024 eru 30 ár síðan samningur Evrópska efnahagssvæðisins (EES) var undirritaður sem veitti Íslandi meðal annars aðgang að innri markaði Evrópusambandsins og aukin tækifæri til samstarfs í Evrópu. Ísland á aðild að fjölmörgum samstarfsáætlunum Evrópusambandsins í gegnum EES samninginn. Þessar áætlanir bjóða upp á tækifæri til samstarfs á fjölmörgum sviðum og hefur hver sínar áherslur og markmið. Veðurstofa Íslands hefur tekið þátt í fjölmörgum slíkum verkefnum. Eitt af stærri samstarfsverkefnum sem stofnunin hefur tekið þátt í og jafnframt leitt er verkefnið EUROVOLC (2018-2021). Verkefnið miðaði að samstarfi og samtengingu evrópskra eldfjallaeftirlits- og rannsóknarstofnanna.
Lesa meiraLítil breyting hefur orðið á landrisinu eftir að eldgosinu lauk. Kvikusöfnun heldur áfram á sama hraða og áður. Nú er magn kviku sem bæst hefur við komið upp fyrir efri mörkin, en reynslan frá Kröflueldum sýnir að eftir því sem kvikuhlaupum fjölgar þarf meiri þrýsting til að koma þeim af stað. Því verður að teljast líklegt að kvika hlaupi aftur úr kvikuhólfinu undir Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, en nokkur óvissa er um hvenær nægilegum þrýstingi verður náð til að koma nýju kvikuhlaupi af stað og að kvika nái til yfirborðs.
Lesa meira
Íslenski veturinn, frá fyrsta vetrardegi 28. október 2023 til og með 24. apríl 2024 var kaldur. Meðalhiti á landsvísu var -0,2 stig sem er, -1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Íslenski veturinn hefur ekki verið eins kaldur síðan veturinn 1998-99. Að tiltölu var kaldara á norðanverðu landinu. En veður var almennt gott. Það var hægviðrasamt og illviðri tiltölulega fátíð. Veturinn var óvenjulega þurr og sólríkur suðvestanlands og er veturinn sá sólríkasti í Reykjavík frá upphafi mælinga.
Lesa meiraEvrópa er ekki undanskilin þegar kemur að afleiðingum loftslagsbreytinga. Hlýnun mælist hröðust í Evrópu, en hiti álfunnar hækkar tvöfalt á við hnattræna hlýnun. Árið 2023 mældist hiti í Evrópu 1,0 °C hærri en meðalhiti viðmiðunartímabilsins 1991-2020 og 2,6 °C hærri en fyrir iðnbyltingu. Ársmeðalhiti var yfir meðallagi í nær allri álfunni árið 2023, ef frá eru talin Skandinavía, Ísland og suðausturhluti Grænlands.
Lesa meira